MODIS

Tillaga að merki · október 2026

Til Björns og Garðars

Merki Modis

Sælir Björn og Garðar,

Hér er tillaga mín að merki Modis. Merkið er langt komið: ég legg til letrið í nafninu og hugmyndina að tákninu, og eftir standa þrjú atriði sem mig langar að heyra álit ykkar á áður en ég geng frá því. Þau eru útskýrð hér fyrir neðan og tekin saman í lokin.

Hvað við gerum

Sérsmíðað, eftir máli

Modis flytur inn og setur upp sérsmíðaðar innréttingar: eldhús, skápa og annað sem smíðað er eftir máli. Íslenskir hönnuðir teikna, framleiðandi erlendis smíðar, fyrst verksmiðja í Moldóvu, og Modis sér um allt þar á milli: verðleggur, gerir samninga, mælir, flytur heim og setur upp. Nafnið er sett saman úr Moldóvu og Íslandi.

Merkið á að segja það sama og verkin: vandað, sérsmíðað og nákvæmt. Yfirbragðið er dökkt, hlýtt og viðarkennt, með ljósum pappírstóni og messinglit til áherslu.

Nafnið

MODIS í hástöfum

Nafnið er sett í hástöfum, með rúmu bili á milli stafa, í letrinu Cormorant Garamond. Það er klassískt rómverskt letur í anda prentletra Garamonds frá 16. öld: létt, rólegt og fágað. Það ber með sér gæði án þess að trana sér fram og nýtur sín jafnt á dökkum grunni sem ljósum.

MODIS
MODIS

Táknið

M í mældum ramma

Táknið er M í ferningi með mælistrikum, eins og á málsettri teikningu. Ferningurinn er rýmið sem við vinnum í, eldhúsið eða herbergið, og strikin eru mælingin. Allt sem Modis afhendir er smíðað eftir máli og táknið segir það án orða. Það getur líka staðið eitt og sér: á stimpli, í horni á tilboði, sem tákn í síma eða grafið í messing eða tré.

Ferninginn má mæla á þrjá vegu:

A Kvarðastrik. Strik eftir efri og vinstri brún, eins og á reglustiku.
B Málsetning. Málsetningarlínur með skástrikum á endum, eins og á smíðateikningu.
C Mælt allan hringinn. Kvarðastrik á öllum fjórum hliðum.

M-ið

Fjórar útgáfur af M-inu

M-ið inni í ferningnum getur verið með ýmsu móti. Hér eru fjórar útgáfur, hver á dökkum grunni og ljósum, með kvarðastrikum.

1 Létt M. Úr Fraunces, letrinu sem við notum í fyrirsagnir: létt og klassískt, leggirnir lóðréttir. Við hlið nafnsins mætast þá tvö letur.
2 Sterkt M. Þungt og kraftmikið M úr sama letri, Fraunces: táknið leiðir og nafnið fylgir.
3 Beinlínu-M. Teiknað úr fjórum jafnbreiðum strikum, formfastast af þeim fjórum. Það er steinskrift (letur án þverenda) og stendur þá við hlið nafns í rómversku letri.
4 Rómverskt M. Sama letur og nafnið, Cormorant Garamond: ytri leggirnir gleiðir, eins og í klassískum rómverskum hástöfum. Tákn og nafn verða eitt.

Í 48, 24 og 16 punkta stærð. Í minnstu stærðunum hverfa mælistrikin og eftir stendur M í ramma; fyrir þær geri ég einfaldari útgáfu.

Hvert M við hlið nafnsins:

1 Létt M
MMODIS
MMODIS
2 Sterkt M
MMODIS
MMODIS
3 Beinlínu-M
MODIS
MODIS
4 Rómverskt M
MMODIS
MMODIS

Ein leið

M-ið sem fyrsti stafurinn

Ein leið er að láta mælda M-ið sjálft verða fyrsta staf nafnsins, með ODIS á eftir. Þá stendur MODIS sem eitt orð og tákn og nafn verða eitt. Ferningurinn stendur þar sem M-ið væri, með sama bili að O-inu og er á milli hinna stafanna, og stafirnir eru jafnháir M-inu í ferningnum. Hér með rómverska M-inu (4), en þetta gengur með hvaða M og hvaða mælingu sem er.

Með málsetningu (B)
MODIS
MODIS
Með kvarðastrikum (A)
MODIS
MODIS

Hvert M sem fyrsti stafur, með málsetningu:

MODIS
1 Létt M
MODIS
2 Sterkt M
ODIS
3 Beinlínu-M
MODIS
4 Rómverskt M

Saman

Tákn og nafn saman

Táknið og nafnið geta staðið saman á fjóra vegu: hlið við hlið, eins og í haus á vef eða bréfsefni; hvort undir öðru; M-ið sem fyrsti stafur nafnsins; eða nafnið eitt, og táknið þá notað eitt sér, á stimpla, sem app-tákn og í mynstur. Allt sýnt með rómverska M-inu (4); hin M-in eru sett upp eins. M-ið sem fyrsti stafur er sýnt með málsetningu, hin með kvarðastrikum.

H Hlið við hlið
MMODIS
MMODIS
S Hvort undir öðru
MMODIS
MMODIS
F M-ið sem fyrsti stafur
MODIS
MODIS
W Nafnið eitt
MODIS
MODIS

Í notkun

Á vefnum

Haus á vefsíðu Modis, dökkur og lágstemmdur, með valmyndinni úr drögum að vefnum. Hver útgáfa merkisins er sýnd í sama hausnum. Hausinn er teiknaður í breidd tölvuskjás; í síma má renna honum til hliðar.

H Hlið við hlið
MMODISVERKFERLIVERKINFYRIR HÖNNUÐIFYRIR HÚSEIGENDURUM OKKURÓSKA EFTIR TILBOÐI
S Hvort undir öðru
MMODISVERKFERLIVERKINFYRIR HÖNNUÐIFYRIR HÚSEIGENDURUM OKKURÓSKA EFTIR TILBOÐI
F M-ið sem fyrsti stafur
MODISVERKFERLIVERKINFYRIR HÖNNUÐIFYRIR HÚSEIGENDURUM OKKURÓSKA EFTIR TILBOÐI
W Nafnið eitt
MODISVERKFERLIVERKINFYRIR HÖNNUÐIFYRIR HÚSEIGENDURUM OKKURÓSKA EFTIR TILBOÐI

Ykkar álit

Þrennt sem ég vil heyra frá ykkur

Veldu eitt í hverjum lið. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er. Atkvæði hinna í hverjum lið sjást um leið og þú hefur kosið í honum.

1. Hvaða M?

2. Hvernig er ferningurinn mældur?

3. Hvernig standa tákn og nafn saman?

Sturla